Hráfæði - Nordic Ferskfóður
Erum komin með frábæra nýjung í verslun okkar í Mosfellsbæ, Nordic ferskfóður frá Hundahreysti, þetta ferskfóður er blandað saman eftir kúnstarinnar reglum svo það fullnægi algjörlega næringaþörf allra hunda en í því er hrátt kindakjöt, nautavambir, blóð, kalk, steinefni og vítamín. Alíslensk framleiðsla byggð á sænskri hugmynd, öll vítamín og næring sem hundurinn þarfnast án þess að kjötið tapi næringu við eldun og án bragðefna, litarefna, rotvarnarefna, bindiefna eða annara óþarfa efna. En vegna þess að varan er aðeins seld frosin er hún aðeins í verslun okkar í Mosfellsbæ, ekki á netinu. Kemur pakkað í flatar pakkningar sem raðast vel í frystikistu eða frystiskáp.
- 20 kg kassi (10x 2kg) á 10500 kr
- 15 kg kassi (15x 1kg) á 8000 kr.
- 10 kg kassi (20x1/2kg) á 6000 kr.
1/2 kg jafnframt selt stakt á 450 kr - frábært fyrir þá sem vilja prufa eða gefa sem viðbót til tilbreytingar.

..Hundaheimur - Háholti 13 Mosfellsbær - 551 3040
(í sama húsi og Krónan og Mosfellsbakarí)Opið virka daga frá 12.00-18.00

..Hundaheimur - Háholti 13 Mosfellsbær - 551 3040



